REI og GGE áttu hæsta tilboðið 21. nóvember 2007 16:05 REI og GGE buðu 84 milljarða í stærsta jarðvarmafyrirtæki Filippseyja. MYND/GVA
Reykjavik Energy Invest, Geysir Green Energy og samstarfsaðili þeirra First Gen Corporation átti hæsta tilboð í sextíu prósenta hlut filippseyska ríkisins í stærsta jarðavarmafyrirtæki Filippseyja, PNOC-EDC. Eftir því sem fram kemur í filippseyskum fréttamiðlum hljóðaði tilboðið upp á 58,5 milljarða pesóa eða rúma 84 milljarða íslenskra króna. Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður REI, sagði í samtali við Vísi að hann gæti ekkert tjáð sig um málið. Það væri enn í ákveðnu ferli. Tilboð íslensku fyrirtækjanna og hins filippseyska First Gen var gert í nafni Red Vulcan Holdings en tilboðum átti að skila í dag. Eftir um þriggja tíma yfirlegu yfir tilboðunum kom í ljós að tilboð Red Vulcan var hæst. Þrír aðrir aðilar voru lokahópi félaga sem gátu boðið í hlutinn en það vpru fyrirtækin AP Renewables, FDC Geo-Energy Holdings og Panasia Energy Holdings. Yfirvöld á Filippseyjum höfðu sagt að lágmarkstilboð í hlutinn væri 45 milljarðar pesóa en FDC hafi átt næsthæsta tilboð eða 48,5 milljarða pesóa. Fram kemur að einkavæðingarnefnd Filippseyja muni leggjast yfir tilboð Red Vulcan og tilkynna á morgun hvort samið verði við félagið. Í raun er um að ræða 40 prósenta hlut í PNOC-EDC en honum fylgir 60 prósent af atkvæðarétti í félaginu. Ljóst er að REI og GGE munu ekki eignast meirihluta í félaginu því þau skilyrði eru sett fyrir kaupunum að innlendur aðili eigi 60 prósent af þeim hlut sem boðinn er út.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Fleiri fréttir Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Sjá meira