Meiri vinna en menn bjuggust við Björn Gíslason skrifar 27. ágúst 2007 12:54 MYND/Stöð 2
Nýbýlavegur verður ekki opnaður við Sæbólsbraut fyrr en á morgun, þremur dögum eftir að framkvæmdum þar átti að ljúka. Eins og fram hefur komið í fréttum hafa orðið miklar umferðartafir við Nýbýlaveg vegna færslu háspennustrengs og sátu menn fastir í umferðarhnútum í allt að klukkutíma fyrir helgi. Framkvæmdirnar hófust á fimmtudag og átti að vera lokið í fyrradag en ófyrirséð mál hafa tafið vinnuna.Að sögn Jóhanns Bergmann, deildarstjóra hjá Vegagerðinni, hefur háspennustrengurinn legið norðan við Nýbýlaveginn en verið er að færa hann suður fyrir veginn vegna fyrirhugaðrar breikkunar vegarins. „Þetta hefur reynst meiri vinna en menn bjuggust við," segir Jóhann og bendir á að ekki megi slíta háspennustrenginn við færsluna þar sem hann sé einn af þremur meginstrengjum fyrir Kópavog og Garðabæ. Því verði að vanda vel til verka.Búið er að opna fyrir umferð milli Auðbrekku og Birkigrundar og eining er fært úr austurhluta Kópavogs eftir Nýbýlavegi út á Hafnarfjaðrarveg en lokað fyrir umferð áfram út á Kársnes undir Hafnarfjarðarveg. Þetta þýðir samkvæmt Vegagerðinni áframhaldandi óþægindi fyrir íbúa á Kársnesi og eru þeir beðnir velvirðingar á töfunum.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira