Afbragðsveður það sem af er sumri Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 12. júlí 2007 19:33
Veðrið leikur svo sannarlega við landsmenn, sunnan og vestanlands, þessa dagana og ekkert lát virðist vera á sólskinsstundum í bráð. Íslendingar grilluðu, átu, drukku og gerðu sér glaðan dag sem aldrei fyrr í síðasta mánuði, og er þessi mikla neyslugleði meðal annars rakin til góðviðris. Einungis eru fimm dæmi um meiri hita í júní síðustu 130 árin. Íslenska þjóðin hefur svo sannarlega gert sér dagamun í góða veðrinu og tölur frá rannsóknarsetri verslunarinnar benda til þess að hún hafi borðað um sextán prósentum meira og drukkið um þrettán prósent meira áfengi en á sama tíma í fyrra. Svo sveiflur séu skoðaðar þá drukkum við um ríflega sextíu prósent meira áfengi í júní en í janúar. Aldrei hefur meira verið grillað og bjór og léttvínsneysla helst gjarnan í hendur við slíkar veislur. Og ástæðan er fyrst og fremst góða veðrið en líka það að fimm helgar voru í júní nú en fjórar í fyrra. Það er jafnvel farið að bera á skorti á grillkjöti í verslunum. Þá var fleira fólk í miðborginni um helgar en í venjulegu ári. Íslendingar hafa fjórum sinnum haft betra veður í júní síðustu hundrað og þrjátíu árin. En blíðan lagðist jafnt yfir landsmenn í júní en gæðunum er meira misskipt það sem af er júlí.
Mest lesið Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Innlent TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Innlent Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Innlent Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Innlent Stinningskaldi og súld suðvestanlands Veður Fleiri fréttir Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Sjá meira
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent