Afnemur gjöld vegna mjólkurvara 14. nóvember 2007 13:44 MYND/GVA
Einar K. Guðfinnsson landbúnaðarráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi um að svokallað verðmiðlunargjald og verðtilfærslugjald, sem lagt hefur verið á hvern mjólkurlítra sem lagður er inn í afurðarstöð innan greiðslumarkskerfisins, verði afnumið. Samkvæmt lögum hefur verðmiðlunargjaldið numið 0,65 krónum á mjólkurlítrann en verðtilfærslugjaldið 2,65 krónum. Verðmiðlunargjaldið hefur hingað til verið notað meðal annars sem rekstrarstyrkir til afurðastöðva og til að jafna flutningskostnað framleiðenda en verðtilfærslugjaldið hefur aftur á móti verið notað til að lækka verð tiltekinna afurða í heildsölu. Fram kemur í athugasemdum með frumvarpinu að markmið þess sé að stuðla að minni afskiptum ríkisvaldsins af framleiðslu og vinnslu mjólkurafurða og bregðast við athugasemdum Samkeppniseftirlitsins um að jafna samkeppnisstöðu afurðastöðva. Þar segir einnig að vegna breytinga á umhverfi mjólkuriðnaðarins, meðal annars með aukinni hagræðingu, sé ekki lengur talin þörf fyrir verðmiðlun og verðtilfærslur. Því þurfi ekki að tryggja þann kostnað sem gjöldunum var ætlað að mæta. Afurðarstöðvarnar þurfa því ekki lengur að greiða þetta gjald en taka á sig kostnað vegna þessa, en hann nam rúmum 380 milljónum króna samkvæmt fjárlögum þessa árs.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Fleiri fréttir Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Sjá meira