Dagmamma undirbýr komu dæmds barnaníðings Andri Ólafsson skrifar 14. nóvember 2007 13:32 Sigurbjörn Sævar Grétarsson fékk fjögurra ára fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Hann keypti nýlega íbúð þar sem rekin er dagvistun fyrir börn. "
Atvinnuöryggi mínu er stefnt í hættu," segir dagmamma sem rekur daggæslu í sama húsi og barnaníðingurinn Sigurbjörn Sævar Grétarsson keypti nýlega íbúð. Sigurbjörn keypti íbúðina, sem er í Vallarhverfinu í Hafnarfirði, í fyrra. Þá sat hann á Litla-Hrauni og afplánaði þriggja ára dóm fyrir kynferðisbrot gegn ungum börnum. Hann lýkur afplánun um helgina og mun þá flytja í sama stigagang og fjöldi barna sækir dagvistun dag hvern. Sigurbjörn sagði í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöld að hann myndi ganga á fund nágranna sinna þegar hann lýkur afplánun og tilkynna þeim að hann hafi fengið dóm fyrir að brjóta gegn börnum. Svo virðist sem nágrannarnir séu einu skrefi á undan Sigurbirni því nokkrir þeir hafa þegar undirbúið komu hans í húsið. Dagmamman sem Vísir ræddi við sagðist hafa greint foreldrum þeirra barna sem hún gætir frá þeirri stöðu sem upp sé komin. Flestir þeirra hafi tekið fréttunum með jafnaðargeði og talið það mikilvægt að fá að vita að dæmdur barnaníðingur komi til með að búa í sama húsi og börn þeirra séu vistuð. Dagmamman segir engu að síður að atvinnuöryggi sínu sé stefnt í hættu með þessu. Það sé ekki þægilegt að reka dagvistun í sama húsi og maður sem hlotið hefur dóm fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn börnum. Hún tekur þó fram að visst öryggi felist í því að vita af manninum. Þannig sé hægt að gera ráðstafanir til að tryggja öryggi barnanna í húsinu.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira