Öryggismat sagt gert eftir forskrift forseta 2. september 2007 09:00 Laufásvegur 72. Gestahús forsetaembættisins á Laufásvegi 72 er sagt nýtt fyrir tigna gesti en nágrannarnir segja þá ekki hafa sést þar árum saman. Öryggisástæður eru sagðar liggja að baki því að neitað er að upplýsa um þá sem gist hafa í húsinu á undanförnum árum. Anton
Eigendur tveggja húsa í næsta nágrenni við gestahús forseta Íslands á Laufásvegi 72 hafa nú kært borgaryfirvöld vegna synjunar leyfis til að gera breytingar við hús þeirra. Skipulagsráð Reykjavíkur neitaði báðum húseigendunum um heimild til breytinganna á grundvelli öryggismats sem forsetaembættið fékk hjá ríkislögreglustjóra, sem taldi breytingarnar torvelda öryggisgæslu við gestahúsið. Í kæru lögmanns Þorsteins M. Jónssonar, stjórnarformanns Vífilfells, sem býr á Laufásvegi 73, segir meðal annars að synjun byggingarleyfis til handa Þorsteini sé brot á meðalhófsreglu og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga. Ólafur Ragnar Grímsson Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála hefur gefið Reykjavíkurborg frest til 6. september til að skýra sjónarmið sín. Það sama gildir um kæru Einars Eiríkssonar, sem býr á Laufávegi 74 og fær ekki að reisa sólstofu vegna nábýlisins við gestahúsið. Þorsteinn hefur nú um árabil reynt að fá leyfi fyrir ýmsum breytingum. Meðal annars vill hann byggja nýtt tvöfalt bílskýli og jarðhýsi og reisa skjólveggi. Forsetaembættið hefur ávallt lagst gegn því að leyfið verði veitt, bæði vegna áðurnefndra öryggissjónarmiða og vegna þess að breytingar myndu raska virðingu og ró götunnar. Þorsteinn M. Jónsson Hvorki skipulagsráð né umræddir nágrannar gestabústaðarins fá aðgang að öryggismati ríkislögreglustjórans. Þá segir lögmaður Þorsteins, Einar Þór Sverrisson, að ríkislögreglustjóri hafi snúist í skoðun sinni á málinu eftir samtöl við fulltrúa forsetaembættins. „Það hvarflar að kæranda (Þorsteini M. Jónssyni) að sjónarmið um öryggi hugsanlegra gesta hússins hafi einfaldlega verið búin til af ríkislögreglustjóra samkvæmt forskrift forseta Íslands,“ segir Einar. Þeir Þorsteinn draga báðir í efa að gestahúsið sé í raun notað fyrir tigna gesti eins og sagt er. „Sé minnsti fótur fyrir þessum öryggiskröfum er starfsemin á röngum stað og ber að víkja en ekki eðlilegir hagsmunir hverfisins,“ segir Einar Eiríksson. Einar Eiríksson Embætti ríkislögreglustjóra hefur áður neitað að svara spurningum Fréttablaðsins varðandi gestahúsið á Laufásvegi.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Erlent Fleiri fréttir Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Sjá meira