Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ segir allt tal um slysagildrur vera froðu Jón Hákon Halldórsson skrifar 28. ágúst 2007 13:49 Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ hlakkar mikið til Ljósahátíðar. Mynd/ GVA „
Það hefur verið mikil froða í kringum stóra gosbrunnamálið eftir að fréttir bárust af því að sápu var hent í brunninn," segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Froða var sett í nýjan gosbrunn sem er staðsettur í miðjum Reykjanesbæ í gær og lak froðan um nálægar götur. Lögreglan segir brunninn vera slysagildru því ekki sjáist ofan í hann. Á botni brunnsins séu oddhvassir hlutir sem börn geti slasað sig á. Árni undrast að fólk hafi hlaupið til og lýst yfir hættu í stað þess að spyrja sig út i gang mála. Hann bendir á að brunnurinn sé á stað sem ekki sé ætlaður til leiks. „Ég hafði bara ekki það ríkt hugmyndaflug að halda að einhverjum gæti dottið í hug að torg á miðri umferðaræð væri leiksvæði," segir Árni. Auk þess bendir Árni á að í smíðum sé grind sem muni liggja yfir vatnsyfirborði brunnsins og koma í veg fyrir að fólk geti svamlað í tjörninni. „En sápan sem var sett í brunninn í gær hefur gefið margar góðar hugmyndir. Einn kom með þá hugmynd að við héldum hátíðlegan sérstakan froðudag. Þá myndi froða leka úr brunninum um allan bæinn. Fólk gæti þá baðað sig í froðunni og notað hana til að þrífa húsin sín," segir Árni kampakátur, enda Ljósadagar framundan í Reykjanesbæ.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri fréttir Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Sjá meira