Rannsakar haglabyssuárás sem tilraun til manndráps Björn Gíslason skrifar 19. júní 2007 12:03
Lögregla rannsakar mál karlmanns, sem skaut af haglabyssu að eiginkonu sinni í Hnífsdal fyrir tíu dögum, sem tilraun til manndráps. Við slíkum brotum liggur allt að 16 ára fangelsi. Hæstiréttur staðfesti í gær áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum til 3. júlí á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn, sem er á sextugsaldri, var handtekinn aðfaranótt laugardagsins 9. júní eftir nokkurra klukkustunda umsátur við hús hans í Hnífsdal. Níu manna sérsveit var send frá Reykjavík til þess að fást við manninn enda hafði hann hleypt af byssu sinni inni í húsinu um svipað leyti og konu hans tókst að komast út úr húsinu og til nágranna. Maðurinn var úrskuðraður í gæsluvarðhald til 15. júní á grundvelli rannsóknarhagsmuna og Héraðsdómur Vestfjarða framlengdi svo gæsluvarðhaldið til 3. júlí. Fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurðinum að maðurinn hafi verið drukkinn umrætt kvöld og ógnað konu sinni með einhleyptri hlaðinni haglabyssu. Þegar konan hugðist fara út úr húsinu hljóp skot úr byssu mannins. Fór það svo nálægt konunni að höglin rispuðu hana meðal annars í andliti. Maðurinn heldur því fram að hann hafi ekki ætlað að vinna konunni mein heldur hafi hann misst takið á byssunni við útidyrnar og skot hlaupið af. Sýslumaðurinn á Ísafirði, sem rannsakar málið, telur hins vegar ekki um slysaskot að ræða heldur tilraun til manndráps. Fór hann því fram á gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna í ljósi þess hve alvarlegt brotið var, en það getur varðað allt að 16 ára fangelsi. Á það féllst Hæstiréttur og sætir maðurinn gæsluvarðhaldi til 3. júlí eða þar til dómur fellur í máli hans.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira