Gerir ráð fyrir mjúkri lendingu 19. júní 2007 12:45 MYND/Stöð 2
Búist er við því að landsframleiðslan dragist saman um 0,1 prósent í ár þrátt fyrir stóraukinn útflutning áls í endurskoðaðri þjóðhagsspá sem birt var í morgun. Starfandi forsætisráðherra gerir ráð fyrir mjúkri lendingu í efnahagsmálum. Hugsanlegar stóriðjuframkvæmdir, gengi krónunnar og kvótaúthlutun fyrir næsta ár eru meðal þess sem veldur óvissu í þjóðhagsspánni. Í henni er bent á að hagkerfið sé að ná jafnvægi samfara samdrætti í fjárfestingum við lok stóriðjuframkvæmda. Einkaneysla fari einnig minnkandi. Reiknað er með að slaki myndist í íslenska hagkerfinu í ár en að hann verði horfinn eftir tvö ár. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forsætisráðherra, segir að mjúk lending sé augljóslega að nást í efnahagslífinu. Það séu reyndar fram undan stórar ákvarðanir í efnahagslífinu vegna þorskkvótans en til lengri tíma litið verði lendingin mjúk. Í spánni er tiltekið að viðskiptahallinn dragist hratt saman í ár og verði 16 prósent af landsframleiðslu, en hann var rúm 27 prósent í fyrra. Enn fremur er búist við að hallinn verði kominn í átta prósent af landsframleiðslu árið 2009. Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir hagkerfið hafa það mikla sveigju að jafnvel þó að menn myndu á næstu árum ráðast í stórframkvæmdir myndi hagkerfið þola það. Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir um tveggja prósenta hagvexti á næstu tveimur árum. Fjármálaráðuneytið segir að verðbólga hafi minnkað hratt á árinu meðal annars vegna lækkunar á matarverði 1. mars. Á móti hafi fasteignaverð hækkað nokkuð umfram aðra liði og aukið verðbólgu. Fjármálaráðuneytið spáir að 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans náist síðar á þessu ári og að verðbólgan verði nálægt markmiðinu á næstu tveimur árum. Samhliða því er gert ráð fyrir auknu atvinnuleysi, 3,9 prósenta atvinnuleysi á næsta ári og 4,5 árið 2009.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Sjá meira