Búist við samdrætti í landsframleiðslu í ár 19. júní 2007 10:46 MYND/E.Ól
Búist er við því að landsframleiðslan dragist saman um 0,1 prósent í ár þrátt fyrir stóraukinn útflutning áls í endurskoðaðri þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins sem birt var í dag. Stóriðjuframkvæmdir og kvótaúthlutun fyrir næsta ár eru meðal þess sem veldur óvissu í spánni. Í spánni er bent á að hagkerfið sé að þróast í átt til jafnvægi samfara samdrætti í fjárfestingum við lok stóriðjuframkvæmda og minnkandi einkaneyslu. Reiknað er með að slaki myndist í íslenska hagkerfinu í ár en að hann verði horfinn eftir tvö ár.Þá er búist við því að viðskiptahallinn dragist hratt saman í ár og verði 16 prósent af landsframleiðslu en hann var rúm 27 prósent í fyrra. Enn fremur er búist við að hallinn verði kominn í átta prósent af landsframleiðslu árið 2009. Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir um tveggja prósenta hagvexti á næstu tveimur árum.Enn fremur segir fjármálaráðuneytið að verðbólga hafi minnkað hratt árinu meðal annars vegna lækkunar á matarverði 1. mars. Á móti hafi fasteignaverð hækkað nokkuð umfram aðra liði og haft áhrif til að halda verðbólgu hærri en ella.Spáir fjármálaráðuneytið að 2,5 prósenta verðbólgumarkmið Seðlabankans náist síðar á þessu ári og að verðbólgan verði nálægt markmiðinu á næstu tveimur árum. Samhliða því er gert ráð fyrir auknu atvinnuleysi, 3,9 prósenta atvinnuleysi á næsta ári og 4,5 árið 2009.Helstu óvissuþættir í þjóðhagsspánni varða frekari stóriðjuframkvæmdir, breytingu á aflamarksreglu fyrir næsta fiskveiðiár, gengi krónunnar, áhrif alþjóðavæðingar á innlenda eftirspurn og endurnýjun kjarasamninga.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira