Innlent

Kæra gróðurskemmdir til lögreglu

Úr safni.
Úr safni. MYND/Stöð2

Ökumenn á fimm torfæruhjólum og einu fjórhjóli ollu nýverið miklum gróðurskemmdum á Arnarvatnsheiði. Skessuhorn greinir frá því að grunur leiki á hvaða menn voru þar á ferð og segir að málið verði kært til lögreglu.

Gróður er mjög viðkvæmur á þessu svæði og getur það tekið hann mörg ár, jafnvel áratugi að jafna sig á skemmdum. Hjólamennirnir ristu gróðurþekjuna vítt og breitt og töluverðar skemmdir eru á bökkum Krókavatns. Lögreglan í Borgarnesi fær málið til meðferðar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×