Jólaverslun eykst mest á Íslandi af öllum norrænu ríkjunum 10. desember 2007 09:51
Áætlað er að jólaverslunin aukist um 9,4 prósent á milli ára hér á landi samkvæmt spá sérfræðinga á Norðurlöndum. Hvergi mun jólaverslunin aukast jafnmikið á Norðurlöndum en samkvæmt útreikningum Rannsóknarseturs verslunarinnar í Svíþjóð, sem hafði yfirmumsjón með samantektinni, verður meðalvöxtur jólaverslunarinnar á Norðurlöndum tæp 7,4 prósent miðað við síðasta ár. Minnst aukning verður hjá frændum okkar Dönum en þar mun jólaverslunin aukast um fimm prósent á milli ára samkvæmt spánni. Í fréttabréfi Samtaka verslunar og þjónustu er vitnað til þessara talna og jafnframt bent á að Íslendingar verji mestu í jólainnkaupin á mann. Almennt er útlitið talið mjög gott fyrir jólaverslun á Norðurlöndum og vísað til þess að mikill uppgangur hafi verið í hagkerfum landanna og hvarvetna ríki bjartsýni um áframhaldandi hagvöxt á næstunni en kólnandi hagkerfi á næsta ári eftir mikið þensluskeið. Bent er á í fréttabréfi Samtaka verslunar og þjónustu að á undanförnum mánuðum hafi mestur vöxtur verið í veltu íþróttavöruverslana og sölu á rafmagnsvörum á Norðurlöndum og gert er ráð fyrir að þessar vörur njóti töluverðra vinsælda fyrir þessi jól. Eins er spáð mikilli leikfangaverslun á Íslandi fyrir jólin í kjölfar aukinnar samkeppni vegna nýrra verslana og það sama gildir í Svíþjóð.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira