Skerðir möguleika á byggingu nýrra álvera Heimir Már Pétursson skrifar 9. nóvember 2007 16:20 Friðrik Sophusson
Landsvirkjun hefur ákveðið að hætta öllum viðræðum um sölu á raforku til nýrra álvera á suðvesturlandi og ræða þess í stað við netþjónafyrirtæki og fyrirtæki á sviði kísilhreinsunar fyrir sólarrafala. Ákvörðunin hefur afgerandi áhrif á möguleika byggingu nýrra álvera á suðvesturhorninu. Undanfarin misseri hefur Landsvirkjun átt í viðræðum við aðila sem hafa áhuga á að byggja ný álver í Helguvík, Þorlákshöfn og Keilisnesi varðandi sölu á raforku frá væntanlegum virkjunum í Þjórsá. Þar verður samtals hægt að virkja um 250 megavött. Stjórn Landsvirkjunar hefur nýverið átt í könnunarviðræðum við fimmtán aðila sem hafa áhuga á að kaupa raforku af fyrirtækinu en í morgun ákvað stjórnin að setja allar viðræður sem tengjast nýjum álverum á Suðvesturlandi í salt. Friðrik Sophusson forstjóri Landsvirkjunar segir að stjórn fyrirtækisins vilji láta á það reyna hvort það fái kaupendur í nýjum greinum, eins og t.d. netþjónabú eða kísilhreinsun fyrir sólarrafhlöður, á betra verði en býðst hjá nýjum álverum í dag. Landsvirkjun gefur ekki upp að svo stöddu hvaða aðilar þetta eru en reiknar með að niðurstöður geti fengist í þær viðræður á næstu mánuðum. Ef af verður munu þessi tvö fyrirtæki fyrst um sinn nýta um 100 megavött af þeim 250 sem fást úr Þjórsárvirkjunum, sem þá yrði virkjuð í áföngum. Friðrik segir að sala til þessara aðila myndi auka fjölbreytnina í hópi kaupenda orku Landsvirkjunar og áhætta fyrirtækisins minnkaði. Þá greiði þessir aðilar hærra verð fyrir orkuna en álfyrirtækin. Friðrik segir þessa aðila bjóða talsvert hærra verð. Þeir komi úr annars konar umhverfi en álfyrirtækin. Netþjónabúin séu oftast í stórborgum þar sem þau greiði hærra verð en jafnvel sé í boði hér. Landsvirkjun hefur kynnt stjórnvöldum ákvörðun sína og þannig átti forstjóri fyrirtækisins fund með Geir H. Haarde forsætisráðherra á þriðjudag. Ákvörðun Landsvirkjunar í morgun er tímamótaákvörðun. Fyrirtækið er í raun í fyrsta skipti í þeirri stöðu að eftirspurn eftir raforku er meiri en framboðið. Forstjóri Landsvirkjunar segir að ekki sé verið að láta undan pólitískum þrýstingi. "Okkar ákvörðun er fyrst og fremst efnahagsleg. Hún byggir á því að við teljum að þetta sé betra fyrir Landsvirkjun, vegna þess að þetta gefur hærra verð. Við teljum líka, vegna þess að við seljum mjög mikið til álvera, sem eru góðir samningar sem við höfum í dag - en við teljum samt að það sé mikilvægt að dreifa áhættunni," segir Friðrik. Þessi ákvörðun hefur ekki áhrif á mögulega byggingu álvers á Húsavík sem fengi alla sína orku af Norðurlandi. Þá mun Landsvirkjun áfram ræða við þegar starfandi álver á á Grundartanga og í Straumsvík ef þau þurfa aukna orku vegna stækkunar á núverandi starfsemi.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira