Þorbjörn Broddason: Styrkur Björgólfs er stórathugaverður Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. nóvember 2007 21:58 Þorbjörn Broddason, prófessor við Háskóla Íslands. „
Það er stórathugavert að Björgólfur Guðmundsson skuli styrkja Ríkisútvarpið um hundruð milljónir króna, " segir Þorbjörn Broddason, fjölmiðlafræðingur og prófessor við félagsfræðiskor Háskóla Íslands. Tilkynnt var í dag að RÚV og Björgólfur hefðu gert samkomulag um að stórefla íslenska dagskrárgerð fyrir sjónvarp. Samkvæmt samkomulaginu munu þessir aðilar tryggja framleiðendum sjónvarpsmynda fjármuni til að hefja framleiðslu á leiknu efni sem sýnt verður í Sjónvarpinu. Samningurinn er til þriggja ára og er áætlað að á tímabilinu muni 200 - 300 milljónir króna renna til íslenskrar sjónvarpsmyndagerðar vegna hans. „Ríkisútvarpið hefur þá sérstöðu að það selur auglýsingar. Þetta gera ríkisreknir fjölmiðlar á Norðurlöndunum, í Bretlandi og í Evrópu ekki, " segir Þorbjörn. Hann bendir á að hingað til hafi verið teknar auglýsingar frá öllum sem vildu auglýsa og tiltölulega litlar upphæðir fengist frá hverjum og einum. „Núna erum við hins vegar komin með stóraðila," segir Þorbjörn, sem telur alveg víst að þessi gjöf geri þiggjandann á einhvern hátt háðan þeim sem gefur. Þorbjörn gerir einnig athugasemdir við að Björgólfur hafi látið þau orð fylgja með gjöfinni að ríkisfjölmiðlar væru slæmur kostur. „Í lýðræðissamfélagi eru ríkisfjölmiðlar einu óháðu fjölmiðlarnir," segir Þorbjörn sem telur að Björgólfur hefði betur átt að láta það ógert að gera þennan samning við Ríkisútvarpið. „Ég tek það fram að ég er ekki að ætla Björgólfi neitt misjafnt varðandi þetta. En mér finnst vafasamt að skapa þessi tengsl, " segir Þorbjörn að lokum.
Mest lesið Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Innlent Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Erlent „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Innlent Hvítt í kortunum og snjómokstursteymið í startholunum Innlent Deilt um kjör Wolt-sendla Fréttir Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Innlent Sáttur við að staða hans sé auglýst Innlent Getur ekki séð að „heimsendaspár gagnrýnendanna“ séu að rætast Innlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent „Algjörlega óboðlegt hvernig þetta hefur verið undanfarin ár“ Innlent Fleiri fréttir Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Hvítt í kortunum og snjómokstursteymið í startholunum Getur ekki séð að „heimsendaspár gagnrýnendanna“ séu að rætast „Algjörlega óboðlegt hvernig þetta hefur verið undanfarin ár“ Hafna kröfum bálstofunnar um endurskoðun starfsleyfis „Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Enn enginn matur á boðstólum félagsmiðstöðvanna Sáttur við að staða hans sé auglýst Holtavirkjun og Skrokkölduvirkjun í orkunýtingarflokk Neitar að hafa nauðgað stúlku milli trjáa Annað hvort í pólitíkina eða á eftirlaun Fleiri reita hár sitt yfir skorti á þrifum en nagladekkjum Kvikuhlaup og eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Grásleppan hleypir upp störfum þingsins Hættur sem framkvæmdastjóri Framsóknar Fyrrverandi markvörður vill fram fyrir Miðflokk Viðgerð vegna eldsvoða að ljúka og Landspítali fær pláss Ungir menn sátu fyrir bjórsala og rændu tugum vodkaflaska Stærstur hluti foreldra falli algjörlega utan afsláttarkerfis Lögreglan leitar manns Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Ný leið í leikskólamálum kynnt og von á snjókomu í kvöld Rukka ekki fyrir 36 tíma leikskóladvöl Deila um vegslóða fyrir Hæstarétt Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Íhugar alvarlega formannsframboð hjá Vinstri grænum Ástæða til að forðast hinn tvöfalda lás Komi öllum við hverjir kaupa vændi eða ætli að gera það Vara við því að færð spillist í kvöld Sundhöllinni lokað á meðan píparar ráða ráðum sínum Sjá meira