Málefni REI rædd á eigendafundi OR eftir viku 9. nóvember 2007 14:23 Frá stjórnarfundi Orkuveitunnar í síðustu viku. MYND/GVA
Stjórn Orkuveitunnar ákvað á fundi sínum í dag að boða til eigendafundar Orkuveitunnar eftir viku þar sem ræða á áfram málefni REI, útrásararms Orkuveitunnar, og hvernig útrás fyrirtækisins verður fyrir komið. „Það er kominn tími á að eigendur Orkuveitunnar komi saman og ræði stöðuna," segir Bryndís Hlöðversdóttir, stjórnarformaður Orkuveitunnar.Eins og kunnugt er ákvað borgarráð að hafna samruna REI og Geysis Green Energy sem samþykktur var á eigenda- og stjórnarfundi Orkuveitunnar í byrjun október. Var stjórn Orkuveitunnar falið að ganga frá málinu og samþykkti hún í síðustu viku að fela stjórnarformanninum Bryndísi að ganga til viðræðna við þá sem aðild eiga að sameinuðu félagi.Aðspurð segir Bryndís að hún sé að vinna þessa dagana að tillögum til lausnar málsins. Hún segist hafa rætt við mjög marga sem komi að samrunanum og muni halda áfram að gera það og finna nýjan farveg fyrir útrás REI. Aðspurð hvort hún komi til með að leggja fram tillögur á eigendafundinum eftir viku segir Bryndís: „Eigendafundur ræðir þá stöðu sem upp verður þá. Við munum vanda okkur í vinnunni að farsælli niðurstöðu í málinu."Fréttir hafa borist af því að Bjarni Ármannsson hugsi alvarlega stöðu sína innan REI vegna þess hve hægt málefni félagsins ganga. Aðspurð hvort hann hafi viðrað þá skoðun að hverfa úr félaginu við hana segir Bryndís að Bjarni hafi lýst sínum skoðunum á málinu í fjölmiðlum. „Ég sýni því virðingu og skilning að margir vilji að málið skýrist sem fyrst. Við verðum hins vegar að ígrunda hvert skref vel og rasa ekki um ráð fram," segir Bryndís. Verkefni stjórnar Orkuveitunnar sé að finna grundvöll þar sem hagsmunir Orkuveitunnar og REI verði sem best tryggðir.Spurð hvor til greina komi að REI og Geysir Green starfi áfram saman að útrásinni segir Bryndís margar vangaveltur uppi en ótímabært sé að fjalla um það hvað verði hugsanlega ofan á.Gunnar tekur undir skoðun DagsGunnar Sigurðsson, fulltrúi Akraneskaupstaðar í stjórn OR, lét bóka á fundinum í dag að hann tæki undir þá skoðun sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri viðraði á fundi með starfsmönnum Orkuveitunnar í gær. Þar sagði Dagur að Orkuveitan yrði áfram í útrás og þá útilokaði hann ekki áframhaldandi samstarf við Geysi Green Energy líkt og nýleg ákvörðun um áframhaldandi verkefni á Filippseyjum sýndi.Gunnar sagði enn fremur að hann teldi að stjórn og eigendur Orkuveitunnar ættu að standa einhuga á bak við fyrirtækið og starfsfólk þess í þeim mikilvægu og vandasömu verkefnum sem Orkuveitan og starfsfólkið ynni fyrir eigendur sína.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira