Innlent

Magnús Oddsson hættir sem ferðamálastjóri

MYND/Heiða

Magnús Oddsson hyggst láta af störfum sem ferðamálastjóri í lok ársins eftir 14 ár í starfi.

Fram kemur í frétt frá Ferðamálastofu að þriðja skipunartímabili Magnúsar ljúki í lok ársins og hann nálgast svokallaða 95 ára reglu. Þá eru ferðamálin á leið frá samgönguráðuneytinu til iðnaðarráðuneytisins og að öllu þessu samanlögðu taldi Magnús rétt að hætta nú. Alls hefur hann starfað að ferðaþjónustu í 33 ár, fyrst á ferðaskrifstofu, þá í flugrekstri og á vegum hins opinbera frá árinu 1989.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×