Innlent

Erfitt fyrir ungt fólk að kaupa fasteign

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. MYND/365

Fasteignasali segir dæmi um ungt fólk sem standi uppi eignalaust skömmu eftir kaup á húsnæði. Hann segir brýnt að afnema verðtryggingu lána.

Arnar Birgisson, fasteignasali á Akureyri, segir mjög erfitt fyrir ungt fólk að koma þaki yfir höfuðið um þessar mundir. Hann vill afnema verðtryggingu af húsnæðislánum og segist vita til þess að ungt fólk hafi séð peninga sína brenna upp vegna verðbólgu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×