Innlent

Eldur á áttundu hæð í Hátúni

Myndin tengist ekki fréttinni.
Myndin tengist ekki fréttinni.

Lögregla og slökkvilið voru kölluð að fjölbýlishúsi í Hátúni í Reykjavík nú fyrir stundu. Eldur hafði komið upp í íbúð á áttundu hæð en búið var að slökkva hann þegar komið var á staðinn.

Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni var engin tilkynning um meiðsli á fólki eða reykeitrun. Eldurinn var minniháttar en oft getur skapast hætta þegar eldur kemur upp svona hátt uppi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×