Innlent

Segir Þyrluþjónustuna ekki uppfylla öryggisreglur

Þyrluþjónustan uppfyllir ekki öryggisreglur Reykjavíkurflugvallar segir upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Íslands. Þrátt fyrir það sé þyrluþjónustunni ekki bannað að nota völlinn, heldur verði hún að lenda þyrlum sínum á viðurkenndum lendingarsvæðum.

Greint var frá því Í fréttum Stöðvar 2 í gær að Þyrluþjónustan megi ekki taka farþega í þyrlur sínar þar sem fyrirtækið sé með aðstöðu á Reykjavíkurflugvell heldur verði að taka þá upp annars staðar. Forsvarsmenn fyrirtækisins eru afar ósáttir við flugmálayfirvöld vegna málsins.

Í fyrra fékk Þyrluþjónustan aðstöðu til reksturs þyrluvallar á Reykjavíkurflugvelli. Valdís Ásta Aðalsteinsdótti,r upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Íslands, segir að á haustdögum hafi verið gerð öryggisúttekt á vellinum og þá hafi komið í ljós að flugtök og lendingar Þyrluþjónustunnar uppfylltu ekki þær öryggiskröfur sem gerðar séu til vallarins.

Í framhaldi af því sendi Flugmálastjórn Íslands Flugstoðum, sem reka flugvöllinn og koma að veitingu lendingarleyfa, niðurstöður úttektarinnar og var leyfið því afturkallað.

Valdís Ásta segir að þetta þýði ekki að þyrluþjónustinni sé bannað að nota völlinn heldur verði fyrirtækið að lenda þyrlum sínum á skilgreindum lendingarsvæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×