Innlent

Undirrituðu samstarfssamning um menntun kennara

Sigrún Sigurðardóttir leikskólastjóri á Hofi  tekur við staðfestingarskjali, vegna samstarfsins, úr hendi Ólafs Proppé, rektors Kennaraháskóla Íslands.
Sigrún Sigurðardóttir leikskólastjóri á Hofi tekur við staðfestingarskjali, vegna samstarfsins, úr hendi Ólafs Proppé, rektors Kennaraháskóla Íslands.
Kennaraháskóli Íslands og 76 grunn- og leikskólar hafa undirritað samstarfssaming um menntun kennara. Fulltrúar samstarfsskólanna skrifuðu undir samninginn þann 8. nóvember síðastliðinn og tóku við skjali til staðfestingar á samstarfinu. Anna Kristín Sigurðardóttir forstöðumaður kennarabrautar KHÍ segir að samningurinn feli í sér samstarf um framkvæmd vettvangsnáms og sé jafnframt viljayfirlýsing skólanna til þess að skapa möguleika á samstarfi á breiðari grunni. Til dæmis samstarf um þróunarverkefni, rannsóknir eða um kennslu faggreina.

Samstarfsskólarnir taka að sér að vera heimaskólar kennaranema við KHÍ, allan námstíma þeirra. Heimaskólar veita ákveðnum fjölda nema aðgang að skólanum til að vinna þar þau verkefni sem tengjast vettvangi. Um getur verið að ræða æfingakennslu, kynnisheimsóknir, þátttöku í undirbúningi og framkvæmd kennslu, athuganir á skólastarfi og fleira




Fleiri fréttir

Sjá meira


×