Atlantsolía í skaðabótamál við Olís 22. október 2007 18:15 Þarna stóð bíllinn áður en hann var fjarlægður á föstudaginn. Olíufélögin ekki sammála um hver hafi yfirráðarrétt yfir svæðinu.
Atlantsolía sakar Olís um að hafa með ólögmætum hætti látið fjarlægja auglýsingabifreið félagsins af bílaplani við Skúlagötuna. Bíllinn var fluttur upp í höfuðstöðvar Vöku þar sem lögmaður Atlantsolíu leysti hann út í dag. Félagið hyggst fara í skaðabótamál við Olís vegna málsins. „Það er alveg klárt að við munum óska eftir skaðabótum vegna þessa máls," sagði Albert Þór Magnússon, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, í samtali við Vísi. „Olís gekk of langt." Starfsmenn Olís óskuðu á föstudaginn eftir aðstoð Vöku við að láta fjarlægja auglýsingabifreið sem Atlantsolía hafði komið fyrir á bílastæði við Skúlagötu. Stæðið liggur við hliðiná bensístöð Olís. Bíllinn var fluttur á geymslusvæði Vöku þar sem hann var yfir helgina. Olísmenn líta svo á að stæðið sé þeirra eign og því hafi þeir verið í fullum rétti að láta fjarlægja bifreiðinar. Þetta vill Atlantsolía ekki sætta sig við. Benda þeir á að Olís hafi fengið úthlutað lóðaskika árið 2001 þar sem bílastæðið stendur nú. Hins vegar hafi þessu aldrei verið þinglýst og því getur stæðið ekki talist eign Olís. Þá segja þeir ennfremur að auglýsingabílnum hafi verið lagt að minnst kosti 20 metrum fyrir utan úthlutuðum lóðaskika Olís. Framkvæmdastjóri Atlantsolíu fór í höfuðstöðvar Vöku á laugardaginn og krafðist þess að fá bílinn leystan út endurgjaldslaust. Þeirri beiðni var neitað af hálfu Vöku. Lögfræðingur Atlantsolíu leysti hins vegar bílinn út í dag með þeim fyrirvara að félagið áskildi sér þann rétt að krefjast seinna greiðslu frá Olís eða Vöku vegna málsins. Atlantsolíumenn ætla að koma bílnum aftur fyrir á bílaplaninu.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira