Innlent

Fjölmargir sektaðir fyrir brot á lögreglusamþykkt

Lögreglumenn að störfum í miðbænum. Úr myndasafni.
Lögreglumenn að störfum í miðbænum. Úr myndasafni. MYND/Eyþór Árnason

Karlmaður á sextugsaldri var meðal þeirra 34 sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greip fyrir brot á lögreglusamþykkt í miðborginni um helgina.

Þrjátíu og þrír karlmenn og ein kona voru í þessum hópi og voru langflestir karlanna á þrítugsaldri, eða 25, og fjórir eru undir tvítugu. Hinir brotlegu höfðu í frammi ýmiss konar ólæti og óspektir en þeim var boðið að ljúka málinu með sektargreiðslu. Margir tóku þann kostinn en meðal þess sem fólkið gerði af sér var að kasta af sér þvagi á almannafæri, fleygja rusli og brjóta glös.

Af öðrum brotum má nefna að einn var tekinn fyrir að veitast að lögreglumanni, annar fyrir að klifra upp á bíl og sá þriðji fyrir að gyrða niður um sig buxurnar, eftir því sem segir í frétt lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×