Ákvörðun um gestaþjóð bókamessu í lok nóvember 22. október 2007 11:20 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra ræddi við Jürgen Boos, framkvæmdastjóra bókamessunnar í Frankfurt, í Frankfurt á dögunum.
Stjórn bókakaupstefnunnar í Frankfurt ákveður á fundi sínum í lok nóvember hvort það verði Íslendingar eða Finnar sem verða gestaþjóð á kaupstefnunni árið 2011. Forsvarsmenn kaupstefnunnar, sem er ein sú stærsta í heimi, eru mjög áhugasamir um þátttöku Íslendinga að sögn aðstoðarmanns menntamálaráðherra. Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra, segir að íslensk stjórnvöld hafi þegar lagt fram umsókn um að verða gestaþjóðin á bókamessunni, en hún er haldin í október ár hvert. Þorgerður Katrín sótti messuna í þarsíðustu viku og átti þá fund með Jürgen Boos, framkvæmdastjóra bókamessunnar, vegna umsóknar Íslendinga. Segir Steingrímur að á þeim fundi hafi komið fram að ákvörðun um það, hver verði gestaþjóð messunnar árið 2011, verði tekin á fundi stjórnar messunnar í lok nóvember. Segir Steingrímur að forsvarsmenn bókamessunnar hafi verið mjög áhugasamir um þátttöku Íslands. Þorgerður Katrín hitti Íslendinga á bókamessunni í Frankfurt fyrr í mánuðinum, þar á meðal rithöfundana Halldór Guðmundsson og Arnald Indriðason. Þorgerður Katrín ræddi einnig við fulltrúa Katalóna á messunni en þeir voru gestaþjóðin í ár. Kynnti Þorgerður sér hvernig Katalónar hefðu staðið að undirbúningi kynningarinnar. Enn fremur hitti menntamálaráðherra Íslendinga sem tóku þátt í messunni. Sem fyrr segir er bókakaupstefnan í Frankfurt ein sú stærsta í heimi. Forsvarsmenn forlaga hér á landi segja að það hafi gríðarlega þýðingu, bæði fyrir íslenskar bókmenntir og Ísland í heild, verði þjóðin fyrir valinu sem gestaþjóð. Fjallað verður um Ísland allt árið á undan messunni í þýskum fjölmiðlum og þá verður áhersla á íslenskar bókmenntir í öllum bókabúðum Þýskalands. Valið stendur hins vegar á milli tveggja þjóða, Íslendinga og Finna.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira