Innlent

Ökumaðurinn í felum

MYND/Heiða

Ekki hefur enn tekist að hafa upp á ökumanni bílsins, sem fannst úti í skurði skammt frá Stóru Laxá í Árnessýslu í gærmorgun.

Þar sem bíllinn hafði oltið nokkrar veltur voru björgunarsveitarmenn kallaðir út til leitar að ökumanninum. Skömmu síðar bárust þau skilaboð frá föður ökumannsins að hann væri kominn til Reykjavíkur, en vildi ekki gefa upp dvalarstað sinn.

Hann er enn í felum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×