Ríkið leggur rösklega 40% á öryggisfatnað sem bjargað getur mannslífum 22. október 2007 18:45
Ríkið leggur ríflega fjörutíu prósent á öryggisfatnað bifhjólamanna í mörgum tilvikum. Þetta er búnaður sem bjargað getur mannslífum. Ný lög skylda ökumenn bifhjóla að nota öryggisfatnað, sem þó er enn óskilgreindur í lögum. Engin viðurlög eru við brotum á nýju lögunum sem þýðir í raun að engin refsing er við því þótt bifhjólafólk aki á gallabuxum og peysu á meðan öryggishjálmurinn er til staðar. Ekki er heldur fullljóst hvað teljist öryggisfatnaður og hvað ekki því þetta er óskilgreint í lögunum. Margir bifhjólamenn eru hlynntir öryggisfatnaði en þeim þykir óásættanlegt með öllu að ríkið skyldi ökumenn til að nota slíkan fatnað á sama tíma og það er að leggja verulegar álögur á fatnaðinn, bæði toll og virðisaukaskatt. Valdís Steinarsdóttir, formaður Sniglanna - bifhjólasamtaka lýðveldisins, telur að aðflutningsgjöld á þennan fatnað séu ekki réttlát og ráði því að fólk kaupi frekar ódýran búnað í stað þess að velja það sem er öruggast. Þar með sé ríkið að beina bifhjólafólki frá því að nálgast þann búnað sem sé bestur. Hlífðarflíkur bifhjólafólks eru nú tollflokkaðar sem venjulegur tískufatnaður. Hágæða bifhjólagalli, sem inniheldur bakbrynju sem talið er að geti komið í veg fyrir varanlegan mænuskaða, getur kostað allt að 70 þúsund krónur í innkaupum. Slík brynja hefur þegar sannað sig í tilviki Þórarins Karlssonar úr Keflavík sem slasaðist lífshættulega í vor þegar ekið var í veg fyrir bifhjól hans í Njarðvík. Þórarinn þakkar brynjunni að hann gangi í dag. Tollur af galla með slíkri brynju er 15% komi hann frá löndum utan EES. Ofan á það bætist 24,5% virðisaukaskattur. Heildarálagning er því röskar þrjátíu þúsund krónur sem renna í ríkissjóð. Álagning ríkisins er því rösklega fjörutíu prósent sem sýnir að allstór hluti af kaupverði gallans rennur beint til ríkisins. Ef varan er hins vegar framleidd innan EES er engin tollur á henni, einungis virðisaukaskattur. Að sögn Einars Magnús Magnússonar, upplýsingafulltrúa hjá Umferðarstofu, er hlífðarfatnaðurinn afar mikilvægur fyrir bifhjólafólk og því sé óæskilegt að aðflutningsgjöldin stýri verðinu. Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri Samgönguráðuneytisins, segir að verið sé að hefja undirbúning að setningu reglugerðar um hlífðarfatnað bifhjólamanna og í þeirri vinnu verði haft náið samráð við hagsmunaaðila. Þessu fagnar Valdís Steinarsdóttir og vonast til að samfara þessu falli aðflutningsgjöld niður af nauðsynlegum öryggisfatnaði bifhjólafólks.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Fleiri fréttir „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Sjá meira