Telur rifta eigi samningi REI og GGE 22. október 2007 12:22
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, telur að rifta eigi samrunasamningi REI og Geysis Green Energy. Menn eigi ekki að komast upp með slík vinnubrögð og málið eigi að fara aftur á byrjunarreit. Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, voru gestir Sigmundar Ernis Rúnarssonar í þættinum Mannamáli sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöld. Steingrímur sagði aðspurður hvort rifta ætti samningi REI og Geysis Green Energy að hann teldi að það ætti að spóla ofan af málinu og koma því algjörlega á byrjunarreit. „Mér liggur við að segja að það sé uppeldislegt atriði, bæði fyrir viðskiptalífið á Íslandi og fyrir stjórnmálalífið á Íslandi, að menn komist ekki upp með svona vinnubrögð," sagði Steingrímur.Steingrímur sagði enn fremur að Orkuveitumálið væri ákveðin siðgæðisprufa. Hann vildi trúa því að menn fyndu leiðir til þessa að koma því út úr heiminum, ef málið yrði ekki dæmt frá í heild sinni.Valgerður Sverrisdóttir sagði aðspurð um hvort ekki ætti að rifta samningnum og byrja upp á nýtt að almennt væru það ekki góðir viðskiptahættir að rifta samningum nema það væri ólöglega til þeirra stofnað. Þetta þyrfti að skoða og sérstakur hópur hefði verið myndaður til þess að gera það.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Fleiri fréttir Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Sjá meira