Stuðst við vísbendingu frá miðli í Þýskalandi við leitina að Þjóðverjunum tveimur 25. ágúst 2007 18:48
Vísbending frá miðli í Þýskalandi hefur verið höfð til hliðsjónar við leitina að Þjóðverjunum tveimur á Svínafellsjökli. Vísbendingar hafa einnig borist frá íslenskum miðlum. Þessar vísbendingar eru teknar alvarlega en þær hafa hingað til ekki leitt til árangurs. Leit var haldið áfram í dag að Þjóðverjunum tveimur sem saknað hefur verið síðan 17. ágúst en þá áttu þeir bókað flug til Þýskalands. Björgunarsveitamenn fundu sólgleraugu og mannbrodda í morgun sem hugsanlegt var að tilheyrðu Þjóðverjunum tveimur en síðar í dag kom í ljós að svo var ekki. Í dag hafa fundist fótspor á nokkrum stöðum á leitarsvæðinu á og við Svínafellsjökul, en það hefur ekki leitt til neins að sögn Ólafar Snæhólm Baldursdóttur, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Ólöf segir að á annað hundrað manns hafi tekið taki þátt í leitinni í dag. Leitað verði fram í myrkur og ákvörðun um framhaldið tekin í kvöld. Vísbendingar hafa verið gefnar af miðli í Þýskalandi og af miðlum á Íslandi og Ólöf segir að þegar svona sé statt sé allt skoðað alvarlega og í samhengi við aðrar vísbendingar sem hafi borist. Ólöf sagðist ekki vilja gefa upp efni einstakra vísbendinga en ljóst sé að mennirnir tveir séu ekki fundnir. Þýski miðillinn hefur áður unnið með lögreglu í Þýskalandi við úrlausn mála þar í landi samkvæmt heimildum Stöðvar 2. Í dag var leitað með þyrlu Landhelgisgæslunnar og nýttist hún einkar vel við að koma leitarfólki á erfiða staði á jöklinum.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Sjá meira