Hátt í fjögur þúsund nöfn í undirskriftarsöfnun 31. október 2007 16:58 MYND/Stöð 2
Hátt í fjögur þúsund undirskriftir hafa safnast í átaki sem Hannes Friðriksson, íbúi í Reykjanesbæ, hóf í gær vegna málefna Hitaveitu Suðurnesja. Hannes segist hafa fundið fyrir sterkum viðbrögðum og að Hafnfirðingar, sem einnig eiga hlut í Hitaveitunni, hafi einnig lýst vilja til að taka þátt í undirskriftarsöfnuninni.Hannes hóf undirskriftarsöfnunina í gær en í henni er skorað á alla sveitarstjórnarmenn á Reykjanesi að leita allra leiða til að tryggja að orkuöflun og sala á vatni og rafmagni verði ekki færð í hendur einkaaðila og að Hitaveita Suðurnesja verði í meirihlutaeign sveitarfélaganna. Hugsanlegt er að töluverðar breytingar verði á hluthafahópi Hitaveitu Suðurnesja í tengslum við samruna REI og Geysi Green Energy og hafa heyrst áhyggjuraddir þess efnis að hitaveitan komist í meirihlutaeigu einkaaðila.Hannes sagði í samtali við Vísi að hann hefði fengið sterk viðbrögð eftir að fjölmiðlar greindu frá framtaki hans en hann safnar bæði undirskriftum á Netinu á heimasíðunni www.askorun2007.is og á blöðum. Segir hann undirskriftirnar farnar að nálgast fjögur þúsund. „Svo hafa Hafnfirðingar hringt og vilja taka þátt," segir Hannes en Hafnarfjarðarbær á hlut í HS sem hugsanlega rennur inn í REI. Hannes segir að hann hafi ákveðið að taka undirskriftir Hafnfirðinga með en þær verða aðgreindar frá undirskriftum Suðurnejsamanna.Undirskriftalistann hyggst Hannes svo afhenda 10. nóvember á fundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Fleiri fréttir Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Sjá meira