Innlent

Tiltölulega fáar umsóknir um lóðir á Reynisvatnsási

Aðeins 280 umsóknir hafa borist í 116 lóðir undir einbýlis-, rað- og parhús á Reynisvatnsási í Úlfarsárdal í Reykjavík en usmóknarfrestur rennur út i dag. Síðan verður dregið úr umsóknum. Þetta er mun minni eftirspurn en verið hefur eftir lóðum á höfuðborgarsvæðinu undanfarin misseri, en dæmi eru um að umsóknir hafi skift þúsundum í álíka margar lóðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×