Á þriðja tug með réttarstöðu sakbornings í TR-máli 31. október 2007 13:56 MYND/Valgarður
Á þriðja tug manna hefur hlotið réttarstöðu sakbornings í rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á fjársvikum fyrrverandi starfsmanns Tryggingastofnunar ríkisins sem upp komst í fyrra, en svikin eru talin nema tugum milljóna. Fram kemur í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra að rannsókn málsins sé á lokastigi og segir Ríkislögreglustjóri máli feykilega umfangsmikið, en málsskjöl fylla nú 30 möppur. Vísa ásökunum um seinagang á bug Í tilkynningunni vísar Ríkislögreglustjóri einnig ásökunum Karls Steinars Guðnasonar, forstjóra Tryggingarstofnunar, um seinagang í rannsókn á tveimur öðrum málum á bug. Málin tvö lúta að meintum svikum tannlæknis og svæfingalæknis en Karl Steinar gagnrýndi lögreglu fyrir framgang í málunum í fréttum Ríkissjónvarpsins þann 24. október. Þar hélt Karl Steinar því meðal annars fram að tannlæknirinn hefði verið grunaður um svik í 14 ár en erfiðlega hefði reynst að „mjaka málinu áfram hjá lögreglunni". Ríkislögreglustjóri segir þetta rangt og að kæra í málinu hafi ekki borist fyrr seint í september í fyrra. Málið hafi fljótlega verið sent staðarlögreglu til rannsóknar og þar sé það enn. Það hafi hlotið eðlilega meðferð hjá lögreglu eftir að kæra barst og það að umræddur tannlæknir var ekki kærður fyrr til lögreglu hljóti að vera algerlega á ábyrgð TR. Þá hafnar lögreglan því að skortur á þekkingu hamli rannsóknum á málum. Rannsókn á svæfingarlækni á frumstigi Um mál svæfingarlæknisins, sem kært var í lok júní, segir Ríkislögreglustjóri að enn sé verið að afla gagna. Þau hafi verið ófullnægjandi þegar kæra barst. Rannsókn sé enn á frumstigi og engan veginn sé hægt að gagnrýna embættið vegna meðferðar þess. Segir Ríkislögreglustjóri að þótt alltaf sé hægt að gera betur sé fullyrt að þeir lögreglumenn sem sinna rannsóknum mála hjá efnahagsbrotadeildinni standi sig einkar vel í starfi.
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Fleiri fréttir Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Sjá meira