Innlent

SBV mátti auglýsa könnun á þjónustugjöldum

Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri SFF, sem áður var SBV.
Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri SFF, sem áður var SBV. MYND/Hari
Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur fellt úr gildi úrskurð Neytendastofu frá í sumar þess efnis að Samtök banka og verðbréfafyrirtækja hefðu brotið lög með því að auglýsa í sjónvarpi niðurstöður könnunar á þjónustugjöldum norrænna banka.

Málið má rekja aftur til ársins 2004 en þá kvörtuðu Neytendasamtökin til Samkeppnisstofnunar undan sjónvarpsauglýsingu Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja þar sem fullyrt var að þjónustugjöld banka væru lægst á Íslandi af öllum norrænu ríkjunum. Auglýsingin byggðist á könnun sem SBV, sem nú heitir Samtök fjármálafyrirtækja, lét gera. Neytendasamtökin töldu auglýsingarnar villandi og ósanngjarnar gagnvart neytendum og könnunin sem vísað var í hefði verið gölluð.

Samkeppnisstofnun var hins vegar lögð niður og verkefni hennar færð til Samkeppniseftirlitsins og Neytendastofu. Þremur árum eftir kæruna, eða í sumar, komst Neytendastofa svo að því að auglýsingin bryti í bága við lög um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins.

Samtök fjármálafyrirtækja leituðu með málið til áfrýjunarnefndar neytendamála sem sneri úrskurði Neytendastofu. Fram kemur í úrskurði áfrýjunarnefndar að í auglýsingunum hafi neytendur verið hvattir til að kynna sér könnun SBV.

Fyrir hafi legið að Neytendasamtökin hefðu ítrekað á árunum 2002 og 2003 fullyrt að þjónustugjöld banka á Íslandi væru hærri en þjónustugjöld erlendra fjármálafyrirtækja. SBV hefði því látið vinna fyrir sig umrædda könnun og auglýsingarnar byggðust á þeim upplýsingum sem þar var að finna. Þá hafi efni skýrslunnar og forsendur verið birtar með aðgengilegum hætti. Ekki yrði því talið að auglýsingarnar hafi verið ósanngjarnar gagnvart neytendum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×