Innlent

Helmingur ók of hratt

Brot átta ökumanna voru mynduð á Hofsstaðabraut á móts við Hörgslund í Garðabæ í dag. Lögreglan hélt uppi eftirliti í götunni eftir að íbúar höfðu bent á tíðan hraðakstur.

Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru sextán ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 48 km/klst. Þarna er 30 km hámarkshraði en sá sem hraðast ók var mældur á 56.

 

Lögreglan segir að hraðaeftirlit á höfuðborgarsvæðinu verði sífellt öflugra. Til marks um það megi nefna að 1.327 ökumenn voru staðnir að hraðakstri í umdæminu í október. „Hér er einvörðungu um að ræða brot sem voru mynduð með svokölluðum umferðarmyndavélum en þær eru staðsettar víða á höfuðborgarsvæðinu. Nú hefur nýr vöktunarstaður bæst við en það eru gatnamót Sæbrautar og Langholtsvegar en þar hefur borið á hraðakstri,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×