Innlent

Þrjú smyglmál á einni viku í Leifsstöð

Tollverðir í Leifsstöð hafa verið iðnir við að grípa dópsmyglara að undanförnu.
Tollverðir í Leifsstöð hafa verið iðnir við að grípa dópsmyglara að undanförnu.

Tollverðir á Keflavíkurflugvelli hafa komið upp um þrjár tilraunir til dópsmygls á undanfarinni viku. Efnin voru kókaín og amfetamín og nálgast samanlagt magn eitt kíló.

Fyrst var hollensk kona tekin með 200 grömm af kókaíni sem falin voru í leggöngum hennar. Á mánudag voru tveir Litháar gripnir með 400 grömm af amfetamíni eftir því sem sem fram kom í Fréttablaðinu í morgun og sama dag voru tvær stúlkur undir lögaldri teknar með 300 grömm af kókaíni.

Allir þessir einstaklingar eru í gæsluvarðhaldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×