Innlent

Vó salt á hlöðnum kanti

Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í Hnífsdal um sjöleytið í morgun vegna hálku með þeim afleiðingum að bíllinn rann útaf veginum og stoppaði ofan á hlöðnum kanti í fjöruborðinu þar sem hann síðan vó salt. Engan sakaði.

Að sögn lögreglunnar á Ísafirði er víða mikil hálka á vegum. Tilkynnt var um tvo útafakstra í gærkvöldi. Í fyrra skiptið var um að ræða ökumann á Hólmavík sem missti stjórn á bíl sínum vegna hálku. Þá missti ökumaður á Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði stjórn á bíl sínum um klukkan ellefu í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn lenti á staur. Ökumann sakaði ekki en bíllinn skemmdist lítillega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×