Engin ákvæði í lögum um samstarf sveitarfélaga og einkaaðila 31. október 2007 10:58 MYND/Róbert
Engin ákvæði er að finna í sveitarstjórnarlögum um samstarf sveitarfélaga við einkaaðila og telur Reykjavíkurborg mjög tímabært að endurskoða lögin þar að lútandi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svari Reykjavíkurborgar við tólf spurningum sem Umboðsmaður Alþingis setti fram í tengslum við samruna Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy og aðkomu Orkuveitu Reykjavíkur að því.Fram kemur í svörum borgarinnar að við allar ákvarðanir stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur og REI í málinu hafi verið gengið út frá því að fyrirtækin séu einkaréttarlegir aðilar en ekki opinberir. Félögin lúti ekki reglum opinbers réttar nema í þeim verkefnum sem eru sérstaklega falin sveitarfélögum að lögum eða hafa verið falin Orkuveitunni á grundvelli einkaleyfis.Í svarinu segir enn fremur að það hafi komið í ljós í þessu máli að gæta þurfi betur að gagnsæi ákvarðanatöku, aðkomu kjörinna fulltrúa og eigenda að ákvörðunum Orkuveitunnar. Segir borgin að fullt tilefni sé til að velta fyrir sér umboði borgarstjóra en hann fari með atkvæðisrétt í öllum hluta- og sameignarfélögum sem borgin eigi hlut í.Ákvarðanir um stofnun dótturfélaga þurfi ekki samþykki eigendaUmboðsmaður Alþingis sendi alls tólf spurningar til eigenda Orkuveitunnar, Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar vegna samruna REI og GGE. Sveitarfélögin fengu frest til að skila svörunum til gærdagsins og birtir borgin sín svör í dag.Í svarinu er rakinn aðdragandinn að stofnun REI og samrunann við Geysir Green Energy. Kemur fram í svörum borgarinnar að af hálfu Reykjavíkurborgar og OR hafi verið litið svo á að einfaldar ákvarðanir stjórnar um stofnun dótturfélaga eða um kaup á hlutum í félögum þurfi ekki samþykki eigenda. Það sé aðeins þegar Orkuveitan takist á hendur ábyrgðir og skuldbindingar sem fallið geti á sveitarsjóði.Tekur borgin fram að samruni REI og GGE, sem samþykktur var á stjórnarfundi OR 3. október, feli ekki í sér ábyrgðir eða skuldbindingar af hálfu eigenda OR. Ekki sé verið að selja eigur OR og allir þeir hlutir sem seldir hafi verið, meðal annars til stjórnarformannsins Bjarna Ármanssonar, séu nýtt hlutafé og verðmæti eignarhlut í félögum sé allt enn til staðar.Þá telur borgin að borgarstjóri hafi stöðuumboð til að taka ákvarðanir fyrir hönd Reykjavíkurborgar í málinu á aðalfundum og eigendafundum Orkuveitunnar en það umboð sé ekki án takmarkana. Tilefnið er spurning umboðsmanns hvort borgarstjóri geti samþykkt án heimildar frá sveitarstjórnum á eigendafundi OR að selja einkaaðila hluti í félögum sem eru í eigu OR.Endurskoðendur treystu sér ekki að verðmeta þjónustusamningUmboðsmaður spyr um verðmat á þeim eignum Orkuveitunnar sem félagið lagði í REI og hvort óháðir sérfræðingar hafi verið fengnir til að meta þá hluti. Fram kemur í svari borgarinnar að verðmat á þeim hlutum sem lagðir voru í REI hafi byggst á nýlegum matsgerðum og kaupsamningum um þessa hluti. Þannig hafi legið staðgóðar upplýsingar verðmæti Enex, Enex Kína og hlutinn í Hitaveitu Suðurnesja. Löggiltur endurskoðandi OR og REI hafi staðfest virði þessara hluta.Þá er minnst á þjónustusamninginn sem REI gerir við OR um aðgang að tækniþjónustu, vörumerki OR og að samstarfsverkefnum OR í útlöndum. Þessi óefnislega eign var metin 10 milljarða króna virði en endurskoðendur treysti sér ekki til að verðmeta samninginn. Erfitt sé að meta óefnisleg gæði en halda megi því fram að slík gæði séu þess virði sem gagnaðilinn sé reiðubúinn að greiða.Svar borgarinnar í heild sinni má finna hér að neðan.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira