Enn deilt um þingskapafrumvarp á Alþingi 13. desember 2007 11:01
Þingmenn vinstri - grænna deildu hart á aðra flokka á Alþingi í morgun fyrir að afgreiða frumvarp um breytingar á þingsköpum gegn vilja flokksins. Þingmenn annarra flokka sögðu vinstri - græna hins vegar ekki hafa viljað málamiðlanir í málinu. Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri - grænna, sagði þingmenn flokksins hafa sett fram málamiðlanir vegna frumvarpsins og að þeir hefðu verið tilbúnir að staðfesta lögin eigi síðar en 8. febrúar en ræða málið betur þangað til. Sagði hann að þetta snerist ekki bara um ræðutíma heldur einnig vinnulag. Ögmundur sagði að hinn nýi þingskapameirihluti hafi ekki viljað hlusta á vinstri - græna og framsóknarmenn og frjálslyndir hefðu jafnvel gengið mest fram af óbilgirni. Sagði hann fulltrúa Framsóknarflokksins í allsherjarnend líklega þjakaðan af lýðræðisþreytu vegna umræðna um Kárahnjúkavirkjun, Írak og fleiri umdeild mál. Samfylkingunni liði vel í faðmi Sjálfstæðisflokksins og Sjálfstæðismenn væru ekki stórir í sniðum þótt fjölmennir væru á þingi. Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sagði mikilvægt að umræða um þessi mál færi fram í dagsljósinu þannig að fólk gæti sem flest fylgst með henni og allir gætu tekið þátt á málefnalegan hátt í umræðum um málið. Sagði hann það koma á óvart að í lok umræðunnar væru nú vinstri - grænir tilbúnir að semja um málfrelsið en það hefðu þeir ekki verið tilbúnir í upphafi umræðunnar um frumvarpið. Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sagði að mörg tækifæri hefðu gefist til að semja um frumvarpið og allir flokkar hefðu tekið þátt í umræðum um það nema vinstri - grænir. Það hafi verið vegna þess að þeir hafi ekki ætlað að vera með frá upphafi. Þegar væri búið að lengja umræðutíma frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir í þingskapafrumvarpinu. Benti Siv því að markmiðið væri að gera Alþingi að fjölskylduvænni og nútímalegri vinnustað. „Ég vorkenni vinstri - grænum í þessu máli, þeir vilja ekki vera með í þessu máli," sagði Siv og sagði flokkinn hafa dæmt sig til einangrunar. Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði að þingskaparmeirihluti allra flokka nema Vg væri tilkominn vegna þess að verið væri að flytja skynsamlegar tillögur og þær hefðu ekkert með ríkisstjórn og stjórnarandstöðu að gera. Sagði hann ræðutíma lítillega skertan en gengið til móts við Vinstri - græna. Þeir sem væru í andstöðu gætu ekki endalaust talað um að brotið væri á þeim ef þeir gæfu ekkert eftir sjálfir. Sagði hann tillögurnar byggjast á heilbrigðri skynsemi en þetta væri ekki í fyrsta og ekki í síðasta skiptið sem stefna Vg og heilbrigði skynsemi í væru andstöðu hvert við annað.
Mest lesið Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Erlent Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Innlent Fleiri fréttir Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Spáð í spilin fyrir komandi kosningar og rætt við vindmylluflutningamenn Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Skotíþróttamenn langeygir eftir starfsleyfi Kosningaspá Vísis: Sjálfstæðisflokkur með afgerandi forystu Bein útsending: Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu Rekstur snyrtistofu til rannsóknar hjá lögreglu Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Sjá meira