Dómi vegna blygðunarbrots vísað heim í hérað 8. nóvember 2007 17:09 MYND/GVA
Hæstiréttur hefur ómerkt og sent heim í hérað dóm yfir karlmanni sem dæmdur var í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir húsbrot, brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum. Manninum var gefið að sök að hafa ruðst inn á heimili konu og tveggja stúlkna, káfað á annarri stúlkunni utanklæða og reynt að kyssa hana og sýnt hinni stúlkunni ruddalegt og ósiðlegt athæfi. Aðalmeðferð í málinu í héraðsdómi fór fram snemma árs 2006 og gáfu ákærði og vitni þá skýrslur fyrir dómi. Dómur hafði ekki verið kveðinn upp í því þegar héraðsdómarinn hvarf frá vegna veikinda. Sá dómari sem tók við málinu ákvað að skýrslugjöf og málflutningur skyldi fara fram að nýju og var það gert snemma á þessu ári. Þangað mætti ákærði ekki og var bókað eftir verjanda hans að honum væri kunnugt um þinghaldið en hann hefði kosið að mæta ekki til þess. Málið var svo dómtekið og var maðurinn sakfelldur fyrir þau brot sem honum voru gefin að sök. Meirihluti Hæstaréttar komst hins vegar að því að þar sem ákærði hefði aldrei komið fyrir þann dómara sem dæmdi í málinu yrði ekki hjá því komist að ómerkja héraðsdóminn og leggja fyrir héraðsdómara að taka málið til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju. Einn dómari, Hjördís Hákonardóttir, skilaði séráliti og taldi að meðferð málsins hefði verið haldin slíkum annmörkum að rétt væri að ómerkja dóminn og vísa málinu heim í hérað. Taldi hún rétt að munnlegur málflutningur færi fram fyrir Hæstarétti og málið yrði síðan tekið til efnislegrar úrlausnar.
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Bílvelta á Hringbraut Innlent Fleiri fréttir Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent