Aron Pálmi segir ólýsanlegt að vera kominn til landsins 26. ágúst 2007 12:25
Aron Pálmi Ágústsson sem setið hefur í fangelsi í Texas fylki í Bandaríkjunum í 10 ár kom til landsins í morgun ásamt móðurfjölskyldu sinni. Hann segir ólýsanlegt að vera loksins kominn til landsins í fyrsta sinn í rúman áratug og þungu fargi sé af sér létt. Fyrir einni viku fékk Aron Pálmi Ágústsson frelsi eftir 7 ára fangelsisvist og þriggja ára stofufangelsi í Texas fylki frá fjórtán ára aldri. Undanfarna viku hefur hann dvalið á heimili foreldra sinna í Houston. Hann lenti á Keflavíkurflugvelli í morgunsárið ásamt þremur móðursystrum sínum og fjölskyldum þeirra sem fylgdu honum hingað. Aron Pálmi var þreyttur eftir langt ferðalag en sagðist ánægður með að vera loksins kominn til landsins. Hann segir ótrúlegt að langþráður draumur hans sé orðinn að veruleika. Aron hyggst dvelja hjá móðursystur sinni fyrst um sinn þangað til hann finnur sér íbúð. Hann stefnir á meira háskólanám við Háskóla Íslands bæði í sálfræði og íslensku en hann hefur lagt stund á sálfræðinám í Texas rúm tvö ár sem RJF stuðnings- og baráttuhópur Arons Pálma hefur kostað. Félagar úr RJF hópnum tóku vel á móti honum á flugvellinum í morgun. Einar S. Einarsson formaður RJF hópsins segist fagna komu Arons Pálma og langri baráttu hópsins sé lokið. Margt tekur við hjá Aroni Pálma næstu mánuði og hyggst RJF hópurinn sjá til þess að hann fái alla þá læknisþjónustu og sálfræðiaðstoð sem hann þurfi á að halda. Níu tímum áður en Aron Pálmi og fjölskylda hans áttu að bóka sig í flug til Íslands á flugvellinum í Boston hafði dagsferð um borgina verið planlögð á vegum Icelandair. Ræðismaður Íslands bannaði þeim að yfirgefa flugstöðina og hótaði Aroni Pálma handtöku yfirgæfi hann stöðina. Ræðismaðurinn sagðist vera með fyrirmæli frá íslenska sendiráðinu í Washington. Skömmu seinna var ágreiningurinn leystur og þau komust út úr flugstöðinni. Albert Jónsson sendiherra í Washington vísar því alfarið á bug í samtali við fréttastofu að hafa gefið slík fyrirmæli og segist harma framkomu ræðismannsins. Nánar verður rætt við Aron Pálma og fjölskyldu hans í kvöldfréttum Stöðvar tvö klukkan hálfsjö.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Sjá meira