Innlent

Lagt til að prestum verði heimilað að staðfesta samvist

MYND/Vilhelm

Lagt verður til á Kirkjuþingi sem hefst á laugardag að prestum sem það kjósa verði veitt heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra. Tillagan er samræmi við ályktun Kenningarnefndar Þjóðkirkjunnar og jafnframt í takt við niðurstöðu skoðanakönnunar meðal presta sem birt var í sumar. Hún sýndi að nærri tveir af hverjum þremur prestum væru fylgjandi slíkri heimild.

Kirkjuþing er fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar og á því eiga sæti 29 kjörnir fulltrúar, 12 vígðir menn og 17 leikmenn auk biskups Íslands, tveggja vígslubiskupa og eins fulltrúa guðfræðideildar Háskóla Íslands með málfrelsi og tillögurétt.

Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Biskupsstofu liggja nítján mál fyrir Kirkjuþingi að þessu sinni, þar af tvö sem snúa að staðfestri samvist samkynhneigðra. Þá liggur fyrir þinginu tillaga um að stofna þjóðmálanefnd kirkjunnar sem á að efla opinbera umræðu um samfélagsmál út frá kristnum grunngildum og tillaga um starfshóp sem á að móta umhverfisstefnu Þjóðkirkjunnar.

Þá hefur Þjóðkirkjan áhuga á að kaupa kapellu sem er að finna á svæði Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar og íbúðir hennir tengdri. Markmiðið með kaupunum á kapellunni, sem nefnist Chapel of Light, er að tryggja Þjóðkirkjunni starfsaðstöðu á þessu nýja íbúðar- og þjónustusvæði og veita íbúum og öðrum kirkjulega þjónustu þar, eins og segir í tilkynningu vegna Kirkjuþings. Afstaða verður tekin til tillögu um þetta mál á Kirkjuþingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×