Innlent

Alvarleg bilun á heitavatnsæð í Kópavogi

MYND/Anton

Stór hluti Kópavogs er án heits vatns þessa stundina vegna alvarlegrar bilunar sem varð á aðalæð austan við Reykjanesbraut gegnt Smáralind í Kópavogi.

Fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitunni að lögreglumenn vakti svæðið og viðgerðarflokkar frá Orkuveitu Reykjavíkur séu komnir á staðinn. Loka þarf fyrir vatnsrennsli um æðina og því er stór hluti Kópavogs, að minnsta kosti öll hverfi við og austan við Smáralind, heitavatnslaus þar til viðgerð er lokið. Engan veginn er hægt að segja hvenær það verður að sögn Orkuveitunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×