769 milljónir í starfsmannamál borgarinnar 18. október 2007 16:42 Dagur B. Eggertsson. MYND/valgarður
Dagur B. Eggertsson, nýr borgarstjóri Reykjavíkur, lagði í dag fram tillögur í borgarráði til aðgerða í starfsmannamálum borgarinnar. Gangi tillögur Dags eftir mun 769 milljónum króna verða veitt í þennan málaflokk á þessu ári og því næsta. Tillögurnar gera meðal annars ráð fyrir því að hlunnindi starfsmanna í föstu starfi verði samræmd og að þeim standi til boða heilsuræktarstyrkir á árinu 2008 að upphæð kr. 16.000 m.v. fullt starf, sundkort, bókasafnskort, aðgangskort á söfn borgarinnar og að Fjölskyldu- og húsdýragarði. „Tilgangurinn er að tryggja að starfsmenn njóti jafnræðis og ekki sé gert upp á milli þeirra í þessum efnum með ómálefnalegum hætti," segir í tillögum borgarstjóra. Þá er gert ráð fyrir því að tilteknum fjármunum, 20 milljónum á árinu 2007 og 180 milljónum á árinu 2008, verði úthlutað til „frístundaheimila, grunnskóla, leikskóla, hjúkrunarheimila og vegna heimaþjónustu og til annarra stofnana, sem glíma við undirmönnun, til að umbuna starfsmönnum sérstaklega vegna mikils álags í starfi. Foreldri ungra barna sem starfa hjá borginni verður einnig veitt forgangsvistun fyrir börn sín á leikskólum og frístundaheimilum. Borgarstjórinn vill einnig að borgarráð veiti samninganefnd „heimild til að endurskoða ákvæði um starfsaldur í hlut¬aðeigandi kjarasamningum frá og með 1. janúar 2008 þannig að starfstími hjá ríki og öðrum sveitarfélögum í sambærilegum störfum verði metinn til jafns við starfstíma hjá Reykjavíkurborg." Fimmta tillagan gengur út á að „frá 1. nóvember 2007 verði gert ráð fyrir fjármunum til leikskóla og hjúkrunarheimila vegna greiðslu til þeirra starfsmanna sem skylt er að matast með þjónustuþegum/nemendum og velja ekki styttri vinnutíma á móti." Þá verði mannauðsskrifstofu í samvinnu við fagsvið borgarinnar falið að útfæra „tillögur um aðgerðir til að laða að fleiri starfsmenn, þ.á.m. eldri starfsmenn með betri ráðningarkjörum og lækkun vinnuskyldu, starfsmenn af erlendum uppruna með starfstengdri íslenskuþjálfun og námsmenn með tækifærum til starfsnáms meðfram vinnu í samstarfi við framhalds- og háskóla og með því að nýta betur tækifæri þeirra til að fá styrki úr starfsmenntunar- og starfsþróunarsjóðum vegna námsins." Í tillögun er lögð áhersla á að fagsviðin reyni eftir föngum að skipuleggja störf og vinnutíma starfsmanna með það í huga að gera vinnustaði borgarinnar eftirsóknarverðari. „Einnig leggur borgarráð áherslu á góða stjórnunarhætti og hvetjandi starfsumhverfi sem eru forsenda fyrir árangursríku starfi." Að endingu er samninganefnd Reykjavíkurborgar falið að „undirbúa markmið Reykjavíkurborgar vegna endurskoðunar á kjarasamningum á árinu 2008 til þess að gera Reykjavíkurborg að enn eftirsóknarverðari vinnustað."
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira