Innlent

Forsetinn verðlaunaður í Alaska

Ólafur Ragnar Grímsson tekur við verðlaununum úr hendir Walter J., Hickel.
Ólafur Ragnar Grímsson tekur við verðlaununum úr hendir Walter J., Hickel. MYND/Forseti.is

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók í gærkvöld við viðurkenningu fyrir forystu um samstarf og sjálfbæra þróun á Norðurslóðum. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Anchorage í Alaska að viðstöddum fjölmörgum þátttakendum á alþjóðlegri ráðstefnu um orkumál á Norðurslóðum og forystumönnum Alaskaríkis.

Eftir því sem segir í tilkynningu frá forsetaskrifstofunni bera verðlaunin heitið The Robert O. Anderson Sustainable Arctic Award en það er Norðurstofnunin (Institute of the North) sem veitir þau. Hún hefur aðalstöðvar í Anchorage. Stofnandi hennar er Walter J. Hickel, fyrrverandi ríkisstjóri í Alaska og innanríkisráðherra í ríkisstjórn Nixons Bandaríkjaforseta.

Ólafur Ragnar hefur undanfarna daga tekið þátt í alþjóðlegri orkuráðstefnu, Arctic Energy Summit, sem haldin er í tilefni af Alþjóðlega heimskautaárinu. Ráðstefnuna sækir fjöldi sérfræðinga, vísindamanna og áhrifamanna frá Bandaríkjunum, Rússlandi, Kanada og Norðurlöndum. Forsetinn flutti ræðu á opnunarfundi ráðstefnunnar ásamt ríkisstjóra Alaska, Söruh Palin, og öldungadeildarþingmanninum Lisu Murkowski.

Þá hefur forsetinn fundað með áhrifamönnum í Alaska og kynnt jarðhitanýtingu á Íslandi. Segir í tilkynningu forsetaembættisins að aðstæður séu um margt áþekkar í Alaska og á Íslandi. Til umræðu hefur verið hvernig nýta eigi jarðhita í Spurr-fjalli í nágrenni Anchorage en þar mætti leggja reynslu Reykjavíkur af virkjunum á Nesjavöllum og Hellisheiði til grundvallar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×