Innlent

Ekki verið tekin afstaða til hlutafélagavæðingar LV

MYND/GVA

Forsætisráðherra segir að ekki hafi verið tekin afstaða til þess hvort Landsvirkjun verði gerð að hlutafélagi. Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins gerði málið að umtalsefni á Alþingi í dag.

Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokksins kvaddi sér hljóðs á Alþingi í morgun og spurði meirihlutann hvort til stæði að einkavæða Landsvirkjun. Hann vitnaði meðal annars til ummæla Friðriks Sophussonar, forstjóra fyrirtækisins sem sagðist í blaðaviðtali styðja hlutafélagavæðingu LV. Þingmaðurinn segist sjá öll merki þess að Sjálfstæðisflokkurinn ætli sér í skjóli Samfylkingarinnar að einkavæða Landsirkjun. Höskuldur sagði þetta stórmál ef rétt reynist og sagði hann stefnu Framsóknarflokksins skýra, að Landsvirkjun verði áfram í eigu þjóðarinnar.

Geir H. Haarde forsætisráðherra svaraði Höskuldi og sagði ekki standa til að einkavæða Landsvirkjun. Hlutafélagavæðing væri allt annað mál en ekki hafi verið tekin afstaða til þess hvort LV verði breytt í hlutafélag.

Iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson sté einnig í pontu og benti á að það sér þætti undarlegt að heyra í framsóknarmönnum tala gegn hlutafélagavæðingu orkufyrirtækja. Hann benti ennfremur á að allir viðstaddir þingmenn Framsóknarflokks og VG hefðu á sínum tíma greitt atkvæði með því að Hitaveita Suðurnesja yrði hlutafélagavædd.

Fleiri þingmenn ræddu málið í morgun, meðal annars Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins sem þakkaði fyrir skýrt svar Geirs Haarde um að ekki stæði til að einkavæða Landsvirkjun. Hann óskaði Samfylkingunni til hamingju með að ætla sér greinilega að standa í lappirnar gegn Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að einkavæðingu ríkisfyrirtækja. „Þið hafið tekið við hlutverki okkar Framsóknarmanna í því," sagði Guðni, og uppskar hlátur nokkurra þingmanna fyrir vikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×