Einar boðar byggðakvóta á færri byggðalög 18. október 2007 12:34
Einar K. Guðfinnson sjávarútvegsráðherra segir í ræðu sinni á aðalfundi Landssambands smábátaeigenda sem nú stendur yfir að byggðakvótinn eigi að renna til færri byggðalaga en nú er. Einar segir að margir líti á byggðakvóta sem almenna uppbót á aflaheimildir manna en það sé ekki hugsunin á bakvið hann. Um byggðakvótann sagði ráðherra að hann eigi að endurspegla betur breytingar sem verða í heildaraflamarki einstakra byggðarlaga t.d. við sölu eða kaup á kvóta og eðlilegt sé að stefna að því að byggðakvótinn renni til færri byggðalaga en nú sé. „Þetta mun auðvitað hafa röskun í för með sér. Það verða menn að gera sér ljóst," segir Einar. "Mér finnst nefnilega eins og ýmsir líti þannig á að byggðakvótinn sé eins konar almenn uppbót á aflaheimildir manna. Sú er þó ekki hugsunin á bak við byggðakvótann. Hann á að þjóna tilteknum tilgangi. Ég tel að byggðakvótinn eigi ekki að vera stór og við eigum ekki að stefna að því að stækka hann frá því sem nú er. Það myndi síst af öllu leysa vanda heldur skapa ennþá fleiri vandamál en þau sem við glímum við um þessar mundir." Hvað snertir línuívilnun benti ráðherra á að hún dreifist víða um land en áhrifa hennar gæti markvissast og mest á þremur landsvæðum, Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Suðurnesjum. Því sé ósanngjörn sú gagnrýni að línuívilnun lýsi sérhagsmunapoti.
Mest lesið Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Sjá meira