Innlent

Mun berjast fyrir bættum hag starfsmanna RÚV

MYND/GVA
Svanhildur Kaaber, fulltrúi Vinstri - grænna í stjórn Ríkisútvarpsins, segist ekki hafa bókað andstöðu á stjórnarfundi um að tvöfalda laun Páls Magnússonar útvarpsstjóra þegar stofnuninni var breytt í opinbert hlutafélag. Hún segir launin há en að hún muni leggja sín lóð á vogarskálarnar til þess að bæta hag annarra starfsmanna RÚV.

Eins og greint var frá í gær þiggur Páll Magnússon um eina og hálfa milljón á mánuði í laun sem útvarpsstjóri en það er nærri tvöflat meira en hann fékk fyrir hlutafélagavæðingu stofnunarinnar.

Svanhildur segir í samtali við Vísi að hún hafi nú þegar óskað eftir yfirliti yfir laun og kjör annarra starfsmanna Ríkisútvarpsins. Mikilvægt sé að horfa til kjaraþróunar innan stofnunarinnar í þessu sambandi en samningar starfsmanna losna nú eftir áramót. „Þetta eru mjög há laun miðað við önnur laun á þessu landi og ég vona svo sannarlega að kjör starfsmanna verði bætt í samræmi við þetta," segir Svanhildur og bætir við að þurfi að vera réttlæti í kjaramálum.

Forystumenn Vinstri - grænna hafa á undanförnum árum gagnrýnt þar sem kallað hefur verið græðgisvæðingu í samfélaginu tengda launum og kaupréttarsamningum stjórnenda í landinu. Aðspurð segist Svanhildur sammála flokksfélögum sínum græðgisvæðinguna en ítrekar að hún muni leggja sín lóð á vogarskálarnar til þess að bæta kjör starfsmanna Ríkisútvarpsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×