Innlent

Vanhirða á laufi veldur stíflum á umferðaræðum

Nú er sá tími kominn að viðamiklir pollar myndasta víða á umferðaræðum borgarinnar þar sem niðurföllin á þeim eru stífluð. Stíflurnar má svo rekja til þess að tré borgarinnar fella laufin á þessum tíma. Laufin safnast síðan saman í niðurföllin og stífla þau. Almenningur getur dregið mjög úr þessu vandamáli með því að hirða betur um garða sína.

Pétur Þór Kristinsson verkstjóri hjá holræsadeild Orkuveitunnar segir að útköllin hjá þeim í ár séu á svipuðu róli og síðustu ár. "Við köllum þetta pollarölt en ef rignir mikið getur fjöldi þeirra skipt tugum á hverjum degi," segir Pétur Þór.

Að sögn Péturs Þórs er vandamálið mismunandi eftir hverfum en að Vesturbæingar séu hvað latastir við að hreinsa laufblöð í görðum sínum. "Við gerum okkar best með því að hreinsa laufruslið fyrir utan garða fólks og á götum úti en það er samt alltaf töluvert um útköll vegna stíflaðra niðurfalla," segir Pétur Þór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×