Rökstuddan grun um brot þarf til að heimila líkamsleit lögreglu 15. september 2007 18:45
Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segir að lögreglan þurfi að hafa rökstuddan grun til að leita á fólki. Með hertum aðgerðum sínum fann lögreglan vopn og fíkniefni á fólki í gær í miðborginni. Sveinn Andri segir að borgarar hafi úrræði telji þeir á sér brotið við slíka líkamsleit. Fólk á skemmtistöðum í miðborginni má búast við því að lögreglumenn taki það til hliðar og leiti á því. Fíkniefnalögreglumenn fóru inn á alla helstu skemmtistaði í Reykjavík í nótt í félagi við þrjá menn úr sérsveitinni sem eru meðal annars þjálfaðir til að glíma við vopnaða og stórhættulega einstaklinga. Lögreglumennirnir leituðu á fólki sem þeim þótti grunsamlegt. Að sögn lögreglu voru ólöglegir hnífar innanklæða á tveimur mönnum og fíkniefni á öðrum sex. Mennirnir verða ákærðir fyrir brot á vopnalögum og brot á fíkniefnalögum. Sveinn Andri segir að lögreglan þurfi að hafa rökstuddan grun um að maður hafi gerst brotlegur við lög til að unnt sé að handtaka viðkomandi. Það sama gildi um leit í bifreið eða leit á einstaklingi að meintum fíkniefnum. Sveinn Andri segir að lögregla geti leitað í heimahúsi einstaklings án dómsúrskurðar í þeim tilvikum þar sem hinn grunaði hefur gerst sekur um brot og honum hefur verið veitt eftirför í framhaldi af brotinu. Sveinn Andri segir að gegnumsneitt vinni lögreglan störf sín vel hér. Hann segir að ef borgarar telji á sér brotið af lögreglu geti þeir kært framgöngu hennar til ríkissaksóknara eða krafið ríkið um skaðabætur vegna ólöglegra aðgerða.
Mest lesið Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Sammála því að erfitt haust sé í vændum Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Fleiri fréttir Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Sjá meira