Innlent

Sögð mikilvægasta nefnd ríkisstjórnarinnar

Hvað á að virkja og hvað á að friða? Nefnd, sem sögð er sú mikilvægasta sem ríkisstjórnin hefur skipað, er ætlað að svara þessum grundvallarspurningum á næstu tveimur árum.

Hvaða fossa ætlum við að virkja og hvaða fossa ætlum við að vernda? Hvaða háhitasvæðum á að hlífa og hvar á að leyfa boranir? Einhverjar hatrömmustu deilur samfélagsins hin síðari ár hafa snúist um spurningar eins og þessar. Nefndir á vegum stjórnvalda hafa raunar undanfarin átta ár undirbúið jarðveginn svo stjórnmálamenn geti svarað slíkum spurningunum. Með skipun verkefnisstjórnar, sem kynnt var í Þjóðmenningarhúsinu í dag, um rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða á að reka endahnútinn á þetta starf og vonast iðnaðar- og umhverrfisráðherra til þess að geta lagt tillögurnar fyrir Alþingi innan tveggja ára. Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri og fyrrverandi alþingismaður er formaður ellefu manna verkefnisstjórnar en auk hennar skipa stjórnina fulltrúar ráðuneyta, stofnana og hagsmunaaðila, eins og sveitarfélaga, nátttúruverndarsamtaka og orkufyrirtækja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×