Innlent

Vestfirðingar stefna á sjávarútvegsháskóla

Vestfirðingar hafa sett stefnuna á eigin háskóla á Ísafirði strax á næsta ári. Þeir vilja að hann sérhæfi sig í fræðum sem lúta að hafinu.

Fjórðungsþing Vestfirðinga fól stjórn sambandsins um síðustu helgi að kalla þegar til fulltrúa sveitarfélaga, rannsóknastofnanna, fyrirtækja og félagasamtaka sem og Háskólasetursins á Ísafirði til að undirbúa málið. Skólanum hefur verið fundinn staður á hafnarsvæðinu á Ísafirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×