Flugmaðurinn ákærður fyrir hrottalegt heimilisofbeldi 12. september 2007 16:00 Úr myndasafni.
Ákæra á hendur karlmanni fyrir hrottalegt heimilisofbeldi var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Um er að ræða sama mann og komst í fréttirnar í síðasta mánuði þar sem hann var sakaður um að hafa smyglað konu frá Venesúela inn í landið í fyrra þegar hann var flugmaður á fraktflugvél. Samkvæmt ákærunni á maðurinn að hafa ráðist á konuna inni á baðherbergi á heimili sínu í janúar síðastliðnum. Þar tók hann hana hálstaki og sló höfði hennar í vegg og sló hana svo margsinnis í líkamann á herbergisgangi íbúðarinnar þannig að hún féll við. Þá sparkaði hann í hana liggjandi. Við þessar barsmíðar tognaði konan á hálsi, fékk eymsli á brjóstkassa, hrufl og marbletti um ofanverðan brjóstkassa, upp á herðar og út á hægri öxl, eymsli á hægra herðablaði, eymsli um brjósthrygg, sár á hægra hné og eymsli á aftanvert hægra læri eftir því sem segir í ákæru. Konan fer fram á hálfa milljón króna í miskabætur vegna árásarinnar. Þær ásakanir konunnar um að maðurinn hafi smyglað henni inn í landið hafa verið til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Frumrannsókn er að ljúka og samkvæmt heimildum Vísis virðist rannsóknin hafa leitt það í ljós að flugmaðurinn hafi ekki gerst brotlegur við lög. Hinn ákærði vildi ekki tjá sig um málið þegar Vísir hafði samband við hann í dag.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira